Loðna
Loðna • Mallotus villosu • Capelán • Capelan • Lodde • Moiva • Shishamo
Loðna veiðist aðallega á nokkurra vikna tímabili í febrúar og mars.
Loðna er unnin til manneldis um borð í uppsjávarskipum fyrirtækisins og frystihúsum í landi. Aðalafurðirnar eru stærðarflokkaðir hængar og hrygnur, saman eða sitt í hvoru lagi, og loðnuhrogn.
Stærsti hluti loðnu fer til framleiðslu mjöls og lýsis í öflugum fiskimjölsverksmiðjum fyrirtækisins. Framtíðarsýn stjórnenda er sú að hægt verði að vinna meira til manneldis.