Ýsa
Ýsa • Melanogrammus aeglefinus • Eglefino Aiglefin • Schellfisch • Kuller • Piksa • Hadokku
Ýsan er veidd af ísfisk- og frystitogurum HB Granda á miðunum allt í kringum landið – og á öllum árstímum. Bestu ýsumiðin eru undan suður- og suðvesturströndinni og oft veiðist hún best á vorin og snemmsumars.
Ísfisktogararnir eru vel búnir til ýsuveiða og er fiskurinn ísaður í kör um leið og hann kemur um borð og kældur til að varðveita hráefnisgæðin. Aflanum er landað í fiskiðjuver fyrirtækisins sem sjá um landvinnslu ýsunnar samkvæmt ítrustu gæðakröfum. Afurðirnar eru lausfrystar, heil flök eða flakabitar. Þá leggur HB Grandi mikla áherslu á sölu ferskra kældra ýsuflaka og hnakka sem send eru samdægurs með flugi á markaði í Evrópu.
Frystiskip fyrirtækisins vinna millilögð og lausfryst ýsuflök. Í báðum tilfellum er um að ræða afbragðs ýsu sem fer beint á veitingahúsamarkað eða í verslanir.
SJÓFRYST
Flök , roðlaus, beinlaus
Flök , roðlaus , með beingarði
flök, með roði og beingarði
Pakkning:
Lagpakkað 3 x 9 kg
Lausfryst 20 kg