Ufsi
Ufsi • Pollachius virens • Palero • Lieu Noir Seelachs, Köhler • Sej • Saida • Seisu
Ufsinn er veiddur af ísfisk- og frystitogurum HB Granda allt árið um kring en mest er veiðin síðla vetrar, vor og sumar. Aðalveiðisvæðin eru undan suður- og vesturströnd landsins.
Í ísfisktogurum HB Granda er lögð rík áhersla á að varðveita ferskleika aflans sem er kældur og ísaður í kör um leið og hann kemur um borð. Aflinn er svo unninn í fiskiðjuverum fyrirtækisins sem sjá um landvinnslu og eru afurðirnar lausfrystar, heil flök eða flakabitar.
HB Grandi býður einnig fersk kæld ufsaflök og hnakka. Vinnsluferlið gengur hratt og örugglega fyrir sig og kaupandinn getur treyst því að um er að ræða gæðavöru sem fengið hefur bestu fáanlegu meðferð á öllum stigum.
Í frystiskipunum er ufsinn flakaður og millilagður eða lausfrystur. Í báðum tilfellum er um að ræða afurðir sem eru framúrskarandi í ferskleika og gæðum.
SJÓFRYSTUR
Flök , roðlaus, beinlaus
Flök , roðlaus , með beingarði
flök, með roði og beingarði
Pakkning:
Lagpakkað 3 x 9 kg
LANDUNNINN
Frystur
Lausfrystir bitar - stærðar flokkaðir
Hnakkastykki
Miðstykki
Sporðar
Pakkning:
5 kg kassar
1kg smásölupoki
Blokkir og marningur
Léttsöltuð flök með roði