Þorskur
Þorskur • Gadus Moruha • Bacalao • Cabillaud • Kabeljau • Torsk • Treska • Madara
Þorskurinn er veiddur af ísfisk- og frystitogurum HB Granda á miðunum allt í kringum landið – allt árið um kring.
Ísfisktogararnir eru vel búnir til þorskveiða og er fiskurinn kældur og ísaður í kör um leið og hann kemur um borð til að varðveita hráefnisgæðin. Aflanum er landað í fiskiðjuver fyrirtækisins sem sjá um landvinnslu og eru afurðirnar lausfrystar, heil flök eða flakabitar. Þá leggur HB Grandi mikla áherslu á sölu ferskra kældra þorskflaka og hnakka sem send eru samdægurs með flugi á markaði í Evrópu.
Frystiskip HB Granda vinna bæði millilögð og lausfryst þorskflök. Í báðum tilfellum er um að ræða afurðir sem eru framúrskarandi í ferskleika og gæðum og fara beint á veitingahúsamarkaðinn eða verslanir.

SJÓFRYST
Flök , roðlaus, beinlaus
Flök , roðlaus , með beingarði
flök, með roði og beingarði
Pakkning:
Lagpakkað 3 x 9 kg
Lausfryst 20 kg
LANDUNNINN
Frystur
Léttsöltuð flök með roði.