Djúpkarfi/Úthafskarfi

Djúpkarfi / Úthafskarfi

Djúpkarfi, Úthafskarfi • Sebastes mentella • Gallineta nórdica • Sébaste du nord • Tiefsee Rotbarsch Dybhavsrødfisk • Morskoi okun’ • Shinkai Akauo
Djúpkarfi og úthafskarfi veiðast innan og utan landhelgi af ísfisk- og frystitogurum HB Granda. Djúpkarfinn finnst víða fyrir vestan, sunnan og austan land en úthafskarfinn er mest veiddur á Reykjaneshrygg, suðvestur af landinu.

Karfinn er unninn um leið og hann kemur um borð í frystitogarana; ýmist hausskorinn eða flakaður og lausfrystur. Í ísfisktogurum fyrirtækisins er aflinn ísaður í kör og honum haldið kældum til að varðveita hráefnisgæðin. Hann er svo unninn í fiskiðjuverinu í landi. Þar er hann hausskorinn og vélflakaður. Flökin eru síðan snyrt og stærðarflokkuð og þeim pakkað í samræmi við óskir kaupenda.

HB Grandi leggur einnig áherslu á sölu ferskra kældra karfaflaka sem send eru samdægurs með flugi á markaði í Evrópu.

SJÓFRYSTUR


Hausskorinn - Stærðarflokkaður
Pakkning 3 x 7 kg
Heill, Stærðarflokkaður
Pakkning 3x7 kg
Lausfryst flök , rodlaus eða afhreinsuð með roði
Pakkning 20 kg

LANDUNNINN


Frystur
Lausfryst flök, -stærðarflokkuð
Pakkning :
5kg kassar eða aðrar stærðir
1 kg smásölu pokar
Ferskur
Flök - stærðarflokkuð
Pakkning : 2,3,5, og 10 kg kassar.

Leit


Leit

Leitarvél

Símanúmer og netföng

Yfirstjórn

Umsókn um starf

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli