Frystihús
HB Grandi rekur öflug frystihús á Akranesi og Vopnafirði sem sérhæfð eru fyrir heilfrystingu á loðnu og síld auk loðnuhrogna. Frystigeta er um 170 tonn á sólarhring á Vopnafirði og um 100 tonn á sólarhring á Akranesi. Loðnufrysting á sér einkum stað frá janúar til mars og síldarfrysting frá október til desember.