Í fiskimjölsverksmiðjum HB Granda miðast vinnslan við að skila afbragðsfiskimjöli og er öflugt gæðaeftirlit liður í því. Starfrækt er efnarannsóknarstofa þar sem gerðar eru allar helstu efnagreiningar á hráefni og afurðum. Allt hráefni sem berst til verksmiðjanna er ferskleikamælt og metið við löndun. Afurðirnar fara svo í gegnum fjölda rannsókna áður en þær eru flokkaðar í einstaka gæðaflokka.