Landfrysting
HB Grandi rekur fiskiðjuver í Reykjavík, Akranesi og á Vopnafirði. Þar er lögð mikil áhersla á framleiðslu lausfrystra flaka og flakastykkja úr karfa, þorski, ufsa og ýsu. Fyrirtækið framleiðir einnig fersk kæld flök sem send eru samdægurs með flugi á markaði í Evrópu. Vinnsluferlið gengur hratt og örugglega fyrir sig og kaupandinn getur treyst því að um er að ræða gæðavöru sem fengið hefur bestu fáanlegu meðferð á öllum stigum. Íslenskur fiskur er á heimsmælikvarða.
Gæðaeftirlit í fyrirtækinu er öflugt. Sýni eru tekin af hráefni fyrir vinnslu og er meðhöndlun metin allt frá því fiskurinn kemur um borð þar til hann er afhentur kaupanda. HB Grandi hefur innleitt innra eftirlitskerfi í samræmi við aðferðafræði HACCP og fengið vottun samkvæmt International Food Standards. Lögð er áhersla á að viðhalda húsnæði og búnaði í samræmi við reglugerðir og ströngustu kröfur matvælamarkaðarins.