Ómengað haf
Niðurstöður rannsókna sýna að Íslandsmið eru afar hrein og íslenskar sjávarafurðir eru heilnæmar og næringarríkar. Vöktun Norður-Atlantshafsins og Norður-Íshafsins byggist á fjölþjóðlegum samningum og rannsóknaáætlunum vísindamanna auk þess sem lögð er áhersla á séríslensk rannsóknaverkefni á hafinu umhverfis landið.
HB Grandi leggur sitt af mörkum með góðri umgengni um þá auðlind sem hafið umhverfis Ísland er. Mikilvægt er að skila vistkerfi sjávar í jafngóðu eða betra ástandi til komandi kynslóða. Á því byggist framtíð fyrirtækisins.