Ábyrgar fiskveiðar

Ábyrgar fiskveiðar

Fiskveiðistjórnun á Íslandsmiðum byggist á lögum um stjórn fiskveiða nr. 38/1990. Þau grundvallast á aflamarkskerfi í þeim tegundum sem veiðar eru takmarkaðar á.
Stjórnvöld, í samráði við hagsmunaaðila, vinna ötullega að því að tryggja sjálfbæra nýtingu á auðlindinni. Ákvarðanir eru ávallt teknar á vísindalegum forsendum og er þar byggt á starfi Hafrannsóknastofnunar.
Fiskverndun á Íslandsmiðum er byggð á þremur grundvallaraðferðum:

Aflareglu sem er þróuð fyrir hvern nytjastofn. Í því felst að ákvarðað er hversu stórt hlutfall er veitt af veiðistofni ár hvert.

Reglum varðandi útbúnað veiðarfæra. Áhersla er lögð á kjörhæfni veiðarfæra sem þýðir að reynt er að veiða einungis þær tegundir og þá stærð af fiski sem leitað er eftir.

Með verndun og lokun ákveðinna svæða. Í þessu felst að ákveðin veiðarfæri eru bönnuð á tilteknum svæðum eða þá að svæði eru algjörlega lokuð fyrir veiðum. Þetta er gert til að vernda t.d. hrygningarfisk eða ungviði.

Leit


Leit

Leitarvél

Símanúmer og netföng

Yfirstjórn

Umsókn um starf

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli