Sjávarútvegsfyrirtæki í fararbroddi
HB Grandi hf. er eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi og hefur skipað sér í fremstu röð fyrirtækja á sínu sviði.
Reynsla og þekking í nýtingu auðlindar og framleiðslu sjávarafurða endurspeglast í öllu starfi HB Granda. Lögð er rík áhersla á háþróaða tækni við veiðar og vinnslu og stöðuga þróun framleiðslunnar. Fyrirtækið framleiðir verðmæta gæðavöru úr fersku hráefni sem aflað er úr hafinu við Ísland. Lögð er áhersla á góða umgengni um auðlindina og ábyrgar fiskveiðar.
HB Grandi stundar veiðar og vinnslu á bolfiski og uppsjávarfiski. Hjá fyrirtækinu vinna um 700 starfsmenn til sjós og lands. Afurðirnar eru seldar víða, en helstu markaðirnir eru Evrópa, Norður-Ameríka og Asía