Frétt

15. júl. 2010

Engar sumarlokanir í Reykjavík og á Akranesi

Nokkrir unglinganna í starfsliði HB Granda í grillveislu sem haldin var á Norðurgarði í dag. Mynd/HB Grandi: Bergur Einarsson.
Nokkrir unglinganna í starfsliði HB Granda í grillveislu sem haldin var á Norðurgarði í dag. Mynd/HB Grandi: Bergur Einarsson.

Fullri vinnslu hefur verið haldið uppi í fiskiðjuverum HB Granda í Reykjavík og á Akranesi nú í sumar og að sögn Þrastar Reynissonar, vinnslustjóra landvinnslunnar, verður ekkert hlé gert á vinnslunni að þessu sinni vegna sumarleyfa. Í stað fastráðinna starfsmanna, sem fara í sumarleyfi, hafa tæplega 80 unglingar staðið vaktina í sumar og reiknað er með því að ráða þurfi fleiri á næstunni.


,,Það hefur ekkert hlé verið gert á vinnslunni í sumar og upp á síðkastið hefur verið nóg að gera. Það stafar m.a. af því að veiði ísfisktogaranna hefur verið góð og eins hefur framboð af fiski á mörkuðum verið að aukast vegna sumarlokana annarra fyrirtækja,“ segir Þröstur en eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni mun kvóti ísfisktogara félagsins duga þeim út fiskveiðiárið eða til loka ágústmánaðar.

Að sögn Þrastar er það forsenda þess að hægt hefur verið að halda uppi fullri vinnslu í Reykjavík og á Akranesi að stór hópur harðduglegs skólafólks hefur starfað í fiskiðjuverunum í sumar.


,,Þetta eru frábærir krakkar. Nú eru 55 skólakrakkar við störf í Reykjavík og ég reikna með því að nokkrir verði ráðnir til viðbótar á næstunni. Á Akranesi er fjöldinn 23 og þar gæti þurft að bæta við fólki,“ segir Þröstur Reynisson en þess má geta að unglingarnir manna nú um helming starfa í fiskvinnslunni á Norðurgarði í Reykjavík og á Akranesi er hlutfallið enn hærra eða um 2/3. Reiknað er með því að í þessari viku og þeim tveimur næstu verði unnið flesta daga frá kl. 6-18 í fiskiðjuverunum í Reykjavík og á Akranesi.


Til baka-Senda fréttFréttaáskrift

Leit


Leit

Leitarvél

Símanúmer og netföng

Yfirstjórn

Umsókn um starf

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli