Frétt

29. jún. 2010

Góðri úthafskarfavertíð lokið

Veiðum frystitogara HB Granda á úthafskarfa á djúpslóð á þessari vertíð er nú lokið. Fjögur frystiskip stunduðu veiðarnar og varð afli þeirra alls um 4.600 tonn. Mun betur gekk að veiða kvótann að þessu sinni en menn áttu von á og gefur það vonandi fyrirheit um að staða karfastofnsins á Reykaneshryggnum sé betri en talið hefur verið.


,,Það var mjög góð úthafskarfaveiði allan maímánuð og við náðum að veiða upp í kvótann á mun skemmri tíma en áætlanir gerðu ráð fyrir,“ segir Birkir Hrannar Hjálmarsson, rekstrarstjóri togara HB Granda en að hans sögn eru nú allir fimm frystitogarar félagsins að veiðum inni í lögsögunni en gert var ráð fyrir því að úthafskarfavertíðin stæði í mánuð til viðbótar.


,,Vandinn er sá að það er lítið eftir af karfa- og þorskkvóta en við því er brugðist með því að sækja í ufsa, ýsu og grálúðu. Allt er gert til þess að forðast karfa og þorsk og þær tegundir verða aðeins veiddar sem meðafli á öðrum veiðum,“ segir Birkir Hrannar Hjálmarsson.


Til baka-Senda fréttFréttaáskrift

Leit


Leit

Leitarvél

Símanúmer og netföng

Yfirstjórn

Umsókn um starf

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli